
Alfa hlaðvarp
Þáttur fyrir fólk með árangursmiðað hugarfar og áhuga á viðskiptum.
Episodes
14 episodes
Dan Sullivan - Maðurinn sem mun lifa að eilífu
Við ákváðum að brjóta upp okkar tímabundnu pásu og taka upp þennan þátt. Þátturinn er með öðru sniði en vanalega þar sem viðmælandinn Dan Sullivan er ekki af íslensku bergi brotinn. Dan byggði upp fyrirtækið Strategic Coach ásamt ei...
•
Season 1
•
Episode 14
•
57:17

Guðbjörg Edda Eggertsdóttir - Einstök saga Actavis
Viðmælandi þessa þáttar, Guðbjörg Edda Eggertsdóttir (eða Edda eins og hún er kölluð), hefur átt langan og farsælan feril sem einn af lykilstjórnendum í Actavis og forverum þess fyrirtækis, Pharmaco og Delta. Í viðtalinu lýsir Edda ...
•
Season 1
•
Episode 13
•
1:08:19

Jón Björnsson - Sigurvegarinn í smásölunni
Gestur þessa þáttar, Jón Björnsson, hefur verið í leiðandi hlutverki við umbreytingu á tveimur stærstu smásölufyrirtækjum landsins, Högum og Festi. Á milli þessara krefjandi verkefna þá tók Jón að sér að snúa við rekstri á krúnudjásni danskrar ...
•
Season 1
•
Episode 12
•
1:42:12

Guðrún Hafsteinsdóttir - Kjörísdrottningin frá Hveragerði
Viðmælandi þessa þáttar er Guðrún Hafsteinsdóttir. Guðrún tók við sem forstjóri Kjörís aðeins 23 ára að aldri eftir að faðir hennar Hafsteinn Kristinsson, sem hafði stofnað og stýrt fyrirtækinu, varð bráðkvaddur aðeins 59 ára að aldri. Guðrún þ...
•
Season 1
•
Episode 11
•
1:18:50

Hjálmar Gíslason - Játningar raðfrumkvöðuls
Gestur þessa þáttar er Hjálmar Gíslason. Hann hefur stofnað fimm fyrirtæki á Íslandi. Fyrstu tvö þeirra Lon&Don og Maskína runnu saman við önnur fyrirtæki. Það þriðja Spurl.net var keypt af Já hf. sem var dótturfyrirtæki Símans hf. á þeim t...
•
Season 1
•
Episode 10
•
1:26:40

Jón Sigurðsson - Sveitastrákurinn með stóru draumana
Gestur þáttarins er Jón Sigurðsson forstjóri Össurar hf. Jón er að eigin sögn slugsi frá Selfossi og móðir hans óttaðist að hann myndi aldrei áorka neinu. Jón féll bæði á gagnfræðiprófi sínu sem og inntökuprófi í rafvirkjanám. Eftir...
•
Season 1
•
Episode 9
•
1:13:40

Alfa Messan með Sesselju Vilhjálmsdóttur og Steinari Þór Ólafssyni
Í þessum þætti af Alfa Messunni fáum við til okkar tvo góða gesti þau Steinar Þór Ólafsson og Sesselju Vilhjálmsdóttur. Steinar er markaðsstjóri Skeljungs og hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir virka umræðu um viðskipti á LinkedIn. Sesselja ...
•
Season 1
•
Episode 8
•
54:31

Liv Bergþórsdóttir - Nova og Wow: Árangur, mistök og hlutverk heppninnar
Liv Bergþórsdóttir hefur verið einskonar ofurkona í íslensku viðskiptalífi undanfarinn áratug. Hún stofnaði fjarskiptafyrirtækið Nova ásamt Jóakimi Reynissyni og Novator. Félagið hóf starfsemi korter í kreppuna sem kom árið 2008. No...
•
Season 1
•
Episode 7
•
1:24:51

Sigurlína Ingvarsdóttir - Bakvið tjöldin hjá Star Wars, FIFA og EVE Online
Það er líklega enginn Íslendingur sem hefur komið að gerð fleiri vinsælla tölvuleikja en viðmælandi okkar í þessum þætti hún Sigurlína Ingvarsdóttir. Þetta ferðalag hefur tekið hana frá Reykjavík til Malmö, Stokkhólms, Vancouver og ...
•
Season 1
•
Episode 6
•
1:14:49

Andri Þór Guðmundsson - Úr 3 í 18 milljarða með myndrænni markmiðasetningu
Hvernig umbreytir þú rótgrónu framleiðslufyrirtæki í árangursdrifið sölu og markaðsfyrirtæki? Viðmælandi okkar í þessum þætti er arkitektinn á bak við undraverðan árangur Ölgerðarinnar. Tekjur Ölgerðarinnar hafa vaxið úr þremur...
•
Season 1
•
Episode 5
•
1:09:22

Alfa Messan með Andrési Jónssyni og Öldu Sigurðardóttur
Þessi þáttur er ekki með hefðbundnu sniði. Þátturinn ber heitið Alfa Messan og í honum er farið yfir það markverðasta sem kom fram í fyrstu þremur þáttum Alfa hlaðvarps. Til þess að gera það hafa þau Gunnar Páll Tryggvason og Rakel ...
•
Season 1
•
Episode 4
•
53:49

Haraldur Þorleifsson - Í hjólastól upp á toppinn
Hvernig er hægt að vera fullur í fimm ár, taka sig svo saman í andlitinu, og á næstu 5 árum búa til eitt flottasta fyrirtæki landsins? Viðmælandi þessa þáttar Haraldur Þorleifsson þekkir það af eigin raun. Hann deilir hér með okkur ...
•
Season 1
•
Episode 3
•
54:48

Eva Sóley Guðbjörnsdóttir - Úr fótboltalandsliðinu í fjármálastýruna
Gestur þáttarins er Eva Sóley Guðbjörnsdóttir. Eva er í dag fjármálastjóri Icelandair Group og var þar á undan fjármálastjóri Advania, eins stærsta upplýsingatæknifyrirtækis landsins. Hún hefur einnig verið varaformaður bankaráðs Landsbankans o...
•
Season 1
•
Episode 2
•
52:49

Gummi Hafsteins - Maðurinn sem Google varð að fá
Gestur þessa þáttar er Guðmundur Hafsteinsson. Á sínum magnaða ferli hefur Gummi starfað hjá tveimur verðmætustu fyrirtækjum heims, Google og Apple. Þar stýrði hann m.a. vöruþróun á Siri og Google Maps. Gummi stofnaði síðan sjálfur fyrirtæki se...
•
Season 1
•
Episode 1
•
1:25:21
